Köld veröldin veit þér ei af,
Varla átt þér samastað
Frið engan í andartak gaf,
Ekki getur sæst við það
Biðin þig vel getur borið,
Býsna langt kjósir þú það
En ríst' á lappir er ljúft kemur vorið
Og létt sólskín rennur í hlað
Lífið þér bíður ef leitar þú vel
Leiðina greiða reynd' að sjá
Veistu það þú verður heimtur úr hel
Og hjartað mun lifna við þá
Vikingur