Króna hér og króna þar
aurinn stanslaust talinn
passa uppá krónurnar
enda vel upp alinn.
Aldrei neitt með nokkrum stæl
ekki leika greifa
nánasanna nísku væl
reikningunum veifa.
Nánasanna nískustand
stendur mér á sama
fæ ég fyrir hjartað hland
og allt verður til ama.
Er ég kom á Íslandsströnd
haldinn dönskum ekka
ekki linast listabönd
látum okkur drekka.