Ég hef fyrir stríðum straum
Stundum flœkzt til baka
Og eins og gengið offc í draum
þá átti' eg helzt ab vaka
þó er mesti munur, á
Myrkum lífsins vegi
Hvert menn stefna' og hvar menn ná
Höfn að liðnum degi
Nökkva lífs á nýjan vog
Nú skal hrinda' úr sandi
Hvað enginn veit, hvað árartog
Eru mörg að landi
þó er mesti munur, á
Myrkum lífsins vegi
Hvert menn stefna' og hvar menn ná
Höfn að liðnum degi